Nothing Found
Sorry, no posts matched your criteria
Sorry, no posts matched your criteria
Gönguferðir GJÖRFÍ, gönguhóps Jöklarannsóknafélagsins, eru á allra færi og eru í vetur að jafnaði farnar annan hvern fimmtudag kl. 17:30. Í skammdeginu verður gengið eftir upplýstum göngustígum, ennisljós geta þó komið að gagni. Gönguferðirnar taka ca 1 1/2 – 2 klst. Oft er farið á veitingastað að lokinni göngu, (upplagt fyrir þá sem ekki komast í göngu að hitta hópinn þar). Í forsvari fyrir hópnum eru Ástvaldur Guðmundsson (sími 822-2581) og Þóra Karlsdóttir, en frekari upplýsingar má nálgast hjá Þóru í síma 866-3370.
Dags. | Áfangastaður | Brottför |
20. febrúar | Kópavogsdalur | Digraneskirkja |
5. mars | Elliðaárdalur | Rafveituheimilið |
19. mars | Laugardalur | Áskirkja |
2. apríl | Straumur | N1 Hafnarfirði |
16. apríl | Rauðavatn | Mbl, hádegismóum |
30. apríl | Heiðmörk | Vífilsstaðahlíð |
14. maí | Búrfellsgjá | Heiðmörk |
28. maí | Hvaleyravatn | N1 Hafnarfirði |
Sumarfrí | ||
6. ágúst | Mosfell | Mosfellskirkja |
20. ágúst | Helgufoss | Gljúrfrasteinn |
3. september | Úlfarsfell | Úlfarsárdalur |
17. september | Tröllafoss |
Nú eru einungis 4 dagar í partý ársins!
Árshátíðin verður haldin á laugardaginn 16. nóvember og er mæting í fordrykk kl. 18 í Öskju, húsi Háskóla Íslands. Þaðan verður svo rúta sem mun keyra okkur að veislusalnum þar sem dýrindis kvöldverður verður á boðstólnum ásamt mikilli gleði og söng.
Það verður enginn bar í veislunni, kjörið tækifæri til að taka með sína uppáhalds drykki til að súpa á allt kvöldið.
Miðasalan er enn í fullum gangi og hægt er að kaupa miða á 6500 kr. hjá Baldri (s. 773-4045), Dísu (s. 525-5862) og Garðari (s. 893-0785).
Haustfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 22. október kl. 20 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Á fundinum mun Magnús Tumi Guðmundsson segja frá ferð Svíanna Wadell og Ygberg í Grímsvötn 1919, fyrir réttum 100 árum, en það er fyrsta ferð í Grímsvötn sem sögur fara af. Eftir kaffihlé mun Sverrir Hilmarsson sýna myndir frá ferðum um jökulbreiður Suðurskautslandsins.
Nánar um efni aðalfundarins í nýju fréttabréfi JÖRFÍ.