Loading
Jöklarannsóknafélag Íslands
  • Forsíða
  • Félagið
    • Fundargerðir
    • Lög
    • Senda fyrirspurn
    • Skráning í félagið
    • Stjórn og nefndir
    • Gögn
    • Styrktarreikningur
    • Kúnstir náttúrunnar
    • Grímsvatnagrallari
    • Innra svæði
      • Lokað svæði stjórnar
      • Lokað svæði vefara
    • Fréttayfirlit
  • Rannsóknir
    • Jöklarannsóknir
    • Sporðamælingar
    • Grímsvötn
    • Vorferðir á Vatnajökul
    • Styrkur Vina Vatnajökuls til vorferðar 2016
    • Almennur fróðleikur
    • Hlekkir
  • Skálar og ferðalög
    • Bókanir í skála
    • Hut booking
    • Skálar JÖRFÍ
      • Breiðá
      • Esjufjöll
      • Fjallkirkja á Langjökli
      • Goðahnjúkar
      • Grímsfjall
      • Jökulheimar
      • Kverkfjöll
  • Fréttabréf
    • 2011-2022
    • 2009-2011
    • 2006-2008
    • 2001-2006
    • 1991-2001
    • 1984-1991
  • Jökull
  • Myndir & myndbönd
    • Vorferð JÖRFÍ 2007
  • Search
  • Menu

Jöklarannsóknafélag Íslands var stofnað í nóvember 1950. Markmið þess er rannsóknir á jöklum og næsta nágrenni þeirra, eða eins og segir í 2.grein laga þess: “Markmið félagsins er að stuðla að jöklarannsóknum og ferðalögum á jöklum landsins, gefa út tímaritið Jökul, ásamt fréttabréfi og gangast fyrir fræðandi fyrirlestrum og myndasýningum”. Starf félagsins byggist á sjálfboðavinnu og hefur því tekist að virkja fjölmennan hóp áhugafólks. Sú samvinna vísindamanna og sjálfboðaliða sem er grundvöllur félagsins hefur skilað miklum árangri og eflt jöklarannsóknir hér á landi. Félagar í Jöklarannsóknafélaginu eru rúmlega 500.

Auk útgáfu Jökuls og að standa fyrir fræðslufundum, vinnur félagið einkum að markmiðum sínum með tvennum hætti:
– Með því að standa fyrir rannsóknaferðum , 1-3 á ári, á Vatnajökul og fleiri jökla.
– Með því að eiga og reka nokkra skála , einn á Langjökli en hina á og við Vatnajökul.

Félagið hefur stundað mælingar á hopi og framskriði jökulsporða allt frá upphafi. Einstakir félagar hafa tekið einn eða fleiri jökulsporða í fóstur og mælt stöðu þeirra einu sinni á ári. Sporðamælingar JÖRFÍ eru besta heimildin um viðbrögð jökla á Íslandi við loftslagsbreytingum á 20. öld.

Fyrsta vorferð Jöklarannsóknafélagsins var farin í júní 1953, í Grímsvötn og víðar um Vatnajökul. Hafa vorferðir verið farnar óslitið síðan. Í þessum ferðum hefur vatnshæð Grímsvatna verið mæld, vetrarákoma og fl. Hin síðari ár hefur umfang rannsókna aukist með bættri ferða- og leiðsögutækni. Nú er unnið að margháttuðum verkefnum í vorferðum félagsins og hafa rannsóknir á nýlegri gosvirkni í Vatnajökli einkum farið fram í þeim ferðum. Einnig hefur félagið staðið fyrir haustferðum þegar ástæða hefur þótt til. Meðal stærri verkefna sem unnin hafa verið í ferðum á vegum félagsins eru borunin á Bárðarbungu 1972 þegar 415 m kjarna var náð úr jöklinum. Er það eina djúpborunin í íslenskan jökul. Einnig hófust íssjármælingar Raunvísindastofnunar í vorferðum félagsins á 8. áratugnum. Auk þessa studdi félagið umfangsmiklar jarðskjálfta- og þyngdarmælingar á vestanverðum Vatnajökli 1997-1999.
Til að geta staðið fyrir rannsóknaferðum á jökla hefur félagið lengst af átt snjóbíla. Á síðustu árum hafa jeppar tekið við sem aðalfarartækin á jökli. JÖRFÍ á nú og rekur breyttan Ford til jöklaferða. Rekstri snjóbíla á vegum félagsins hefur verið hætt. Annar af síðustu snjóbílum félagsins, Jökull I, af Bombardier gerð, var gefinn Byggðasafninu á Hornafirði 1999 og er þar nú sýningargripur á jöklasýningu safnsins.

  • Fundargerðir
  • Lög
  • Senda fyrirspurn
  • Skráning í félagið
  • Stjórn og nefndir
  • Gögn
  • Styrktarreikningur
  • Kúnstir náttúrunnar
  • Grímsvatnagrallari
  • Innra svæði
    • Lokað svæði stjórnar
    • Lokað svæði vefara
  • Fréttayfirlit
Allur réttur áskilinn - Jöklarannsóknafélagi Íslands 2021
Scroll to top