Yfirlit yfir fréttir og færslur skrifaðar á vef félagsins
Nothing Found
Sorry, no posts matched your criteria
Haustferð JÖRFÍ í Jökulheima 15.-16. september 2007
Heldur var haustferðin vetrarleg í ár. Þrátt fyrir kalda veðurspá með úrkomu reiknuðu þátttakendur ekki með slíkri ófærð og snjómokstri inn á fjöllum. Fækkaði í hópnum í aðdraganda ferðarinnar, líklega vegna lítt freistandi spár, en galvaskur hópur lagði af stað úr höfuðborginni að morgni 15. september, alls 5 bílar. Slydda og snjómugga tók á móti hópnum í Hrauneyjum, en ferðaáætlun var haldið og keyrt um Þórsiós og Veiðivatnahraun. Jólalegt var um að lítast, hvít jörð og einstaka hraunnibbur sáust út um snjóugar bílrúðurnar. Má segja að Freelander Sverris Elefsen hafi staðið sig einna best á þessari leið, en öruggt leiðarval Hlyns Skagfjörð á rauðu Toyotunni auðveldaði til muna aksturinn í hvítu hrauninu. Var náð í Jökulheima um kaffileytið og hafði þá Jöklarauður sameinast hópnum við Þröskuld, með vaska skálasveit innanborðs, Villi, Árni Palli og börn. Eftir kakódrykkju og afslöppun í skálunum ákvað hluti hópsins að láta ekki frost og snjófjúk á sig fá og heimsóttu Heljargjá og Dórinn. Jöklarauðssveitin setti oliu á skálana, tóku til í vélageymslunni og hugðu að skálunum. Grillveisla um kvöldið í skjóli vélageymslunnar lukkaðist vel, og allir fóru mettir í koju. Bættist einn bíll við hópinn um kvöldið, Hlynur Snæland og fjölskylda. Blár himin, sólskin og frost tók á móti hópnum í morgunsárið, flórsykrað landslagið ekki síðra en á heitum sumardegi. Einungis þrír bílar fóru áætlaða leið yfir Tungná á Gnapavaði, á Breiðbak og inná nyrðra Fjallabak. Aðrir þátttakendur fóru hefðbundna leið til byggða, ruddust gegnum snjóskafla í veginum, sumir í tóg og aðrir án.
Ferðalangar í fánalitunum nærri Langasjó
Gnapavað var ekki til vandræða, enda búið að vera frost daginn áður og um nóttina. Leiðin uppá Breiðbak gekk vel, en Snæland ruddu veginn á hvíta fína Patrólnum. Yfirsýn á Langasjó og jökla var mögnuð, hvít veröldin í allri sinni dýrð. Þótti leiðangursmönnum og konum þau hafa launað útsýnið með skyggnislausu skakki daginn áður. Bílar voru festir í krapa, snjósköflum, bleytu og sandi, voru spil og spottar notaðir í gríð og erg. Komið var niður að Langasjó og keyrt inná Nyrðri Fjallabaksleið yfir krapafyllta læki og snjóugarbrekkur. Við Höllina rakst hópurinn á tvo smala, sem voru heldur þungir á brún, enda gekk reksturinn hægt og illa. Sunnan við Landmannalaugar var færðin heldur betri, og var farin Sigölduleið í Hrauneyjar. Má segja að hetjur dagsins hafi verið yngri deildin sem lét sig hafa það að hossast í bílunum allan daginn og blái Wranglerinn, en hann var eina farartækið sem ekki þurfti að kippa í. Ekki var Fjallabak ófærara en svo að hópurinn í fánalitunum var kominn til höfuðborgarinnar eftir 10 tíma ferðalag úr Jökulheimum, reynslunni ríkari með myndavélarnar fullar af fallegum vetrarmyndum. Víst er nauðsynlegt að fara svipaða leið áður en langt um líður og skoða betur hraunin, sigdalina, sprungurnar og eldvörpin áður en þau klæðast vetrarkápunni.
Skemmtinefndin þakkar fyrir góða ferð.