Sumarferð JÖRFÍ 9.-11. ágúst
Sumarferð JÖRFÍ verður farin helgina 9. – 11. ágúst. Að þessu sinni verður farið í Bása í Þórsmörk og gist í tjöldum. Aðalþema ferðarinnar verður skoðun á ummerkjum um eldgosin í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi vorið 2010. Fyrstu daga gossins í Eyjafjallajökli komu heilmikil jökulhlaup niður Gígjökul, fylltu lónið og gerbreyttu landslagi framan við jökulinn. Þessi hlaup ásamt gosinu sjálfu eru nú komin í fræðibækur. Við eigum hinsvegar eftir að skoða þetta allt betur. Ætlunin er að kanna ummerkin, farvegi og aurkeilur, bera saman við Steinholtshlaupið sem varð í janúar 1967 og ef tími vinnst til, skoða önnur ummerki eins og hraunin sem mynduðust í gosinu á Fimmvörðuhálsi. Fararstjóri verður Magnús Tumi Guðmundsson.
Reiknað er með því að í ferðinni verði viðfangsefni við allra hæfi. Aukaþema ferðarinnar verður að eiga góðar stundir í góðra vina hópi. Félagsmenn, vinir og fjölskyldur velkomin.
Brottför verður úr bænum kl. 16 á föstudeginum. Við höfum tekið viðveruhús Útivistar í Básum frá fyrir laugardagskvöldið og tjaldsvæði fyrir 30 manns. Ef fólk vill gista í skála er rétt að hafa beint samband við Útivist. Farið verður á einkabílum og leitast verður við að finna pláss fyrir alla. Þátttaka í sumarferð tilkynnist Þóru Karlsdóttur, síma: 866-3370 eða netfangi: thorakarls@gmail.com.