Fyrstu skálarnir, á Breiðamerkursandi og í Esjufjöllum voru reistir sumarið 1951. Síðan hafa bæst við fleiri skálar en aðalaðstaða félagsins er á Grímsfjalli við Grímsvötn og í Jökulheimum við Tungnaárjökul. Húsin í Jökulheimum, hús II og III á Grímsfjalli og húsið í Esjufjöllum eru læst. Ferðamenn fá að gista í þeim ef pantað er fyrirfram og ekki eru árekstrar við notkun vegna rannsókna. Reyndin er sú að flestir sem eftir leita fá inni í skálunum í Jökulheimum og Grímsfjalli. Gistiskálar félagsins á og í grennd við Vatnajökul eru innan Vatnajökulsþjóðgarðs.

skálar JÖRFÍ