Nothing Found
Sorry, no posts matched your criteria
Sorry, no posts matched your criteria
Aðalfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 20:00. Fundurinn mun fara fram með rafrænum hætti vegna Covid 19 og samkomutakmarkana.
Nánar um efni aðalfundarins í nýju fréttabréfi JÖRFÍ.
Hlekkur með aðgangi á rafrænan aðalfund verður sendur á félaga tveimur dögum fyrir aðalfundinn. Hafi rafræn aðalfundarboð ekki þegar borist í tölvuskeyti þann 11. febrúar þá þarf að athuga hvort rétt netfang sé skráð í félagatali JÖRFÍ. Félagar án netfangs, sem fá fréttabréf jafnan í bréfpósti, geta upplýst okkur um netfang sem við munum senda hlekkinn á rafræna fundinn á. Frekari leiðbeiningar eru í nýju fréttabréf.
Mánudaginn 25. janúar, voru borin til grafar hjónin Guðbjörg Jóna Hjálmarsdóttir og Pétur Þorleifsson. Pétur var fjalla- og jöklamaður og heiðursfélagi í Jöklarannsóknafélaginu. Þau létust með 10 daga millibili en bæði áttu við vanheilsu að stríða síðustu misserin. Pétur var fæddur 1933 og því á 88. aldursári þegar hann lést. Hann var allra manna víðförlastur og fróðastur þegar kom að íslenskum fjöllum og skrifaði m.a. tvær vinsælar bækur um gönguleiðir á fjöll, aðra í samvinnu við Ara Trausta Guðmundsson. Pétur fór margar jöklaferðir, gekk á skíðum um jökla, ferðaðist lengi á vélsleðum og átti hlut í snjóbíl á 7. áratug síðustu aldar. Pétur sat um tíma í stjórn félagsins, beitti sér fyrir byggingu fjallaskála á háfjöllum og átti stærstan þátt í að velja skálum félagsins við Fjallkirkju í Langjökli og á Goðahnjúkum austast á Vatnajökli stað. Þessir skálar hafa aldrei verið fjölsóttir en skálastæðin eru einhver þau fallegustu sem um getur á Íslandi. Pétur var gerður að heiðursfélaga í Jöklarannsóknafélaginu á sextíu ára afmæli þess árið 2010, fyrir mikið framlag sitt til jöklaferða og könnunar.
Jöklarannsóknafélagið minnist Péturs með hlýhug og þakklæti fyrir vel unnin störf og mikilsvert framlag um áratugi.
Fjarfundur JÖRFÍ þriðjudag 12. janúar kl. 20-21
Sigrún Helgadóttir – fyrirlestur JÖRFÍ: Sigurður Þórarinsson, fyrstu ferðir hans á jökla.
Hér er hlekkur á fundinn, hann opnast kl. 19:45: https://eu01web.zoom.us/j/68720181437
Ágrip fyrirlestursins: Sigurður Þórarinsson, fyrstu ferðir hans á jökla.
Störf Sigurðar fyrir Jöklarannsóknafélagið þarf vart að kynna félögum þess. Hann sat í stjórn félagsins í 30 ár, leiðangursstjóri margra ferða á jökla og var ritstjóri Jökuls í áratugi. Hann varð formaður félagsins 1969 og gengdi því starfi til dauðadags í febrúar 1983. Allt þetta og svo miklu meira þekkja margir félagar í Jöklarannsóknafélaginu, þekkja til rannsókna hans, kunna ótal sögur af Sigurði og muna margir skemmtilegheit hans og snilli.
En hvenær kynntist Sigurður jöklum? Hvenær fór hann fyrst á jökul? Hvað gæti hafa kveikt þennan mikla áhuga hans á jöklum? Sigrún Helgadóttir hefur á síðustu árum skrifað ævisögu Sigurðar sem vonandi kemur út í tveim bindum síðar á þessu ári. Sigurður var fæddur 1912 og Sigrún mun rekja lítillega uppvöxt hans, æskuár og fyrstu ferðir um Ísland. Síðan fyrstu ferðir hans á jökla og loks ferðir og leiðangra sem hann fór um jökla áður en Jöklarannsóknafélagið var stofnað. Líka verða sýndar fjölmargar myndir frá þessum tíma, að mestu fengnar úr miklu myndasafni Sigurðar.