Loading
Jöklarannsóknafélag Íslands
  • Forsíða
  • Félagið
    • Fundargerðir
    • Lög
    • Senda fyrirspurn
    • Skráning í félagið
    • Stjórn og nefndir
    • Gögn
    • Styrktarreikningur
    • Kúnstir náttúrunnar
    • Grímsvatnagrallari
    • Innra svæði
      • Lokað svæði stjórnar
      • Lokað svæði vefara
    • Fréttayfirlit
  • Rannsóknir
    • Jöklarannsóknir
    • Sporðamælingar
    • Grímsvötn
    • Vorferðir á Vatnajökul
    • Styrkur Vina Vatnajökuls til vorferðar 2016
    • Almennur fróðleikur
    • Hlekkir
  • Skálar og ferðalög
    • Bókanir í skála
    • Hut booking
    • Skálar JÖRFÍ
      • Breiðá
      • Esjufjöll
      • Fjallkirkja á Langjökli
      • Goðahnjúkar
      • Grímsfjall
      • Jökulheimar
      • Kverkfjöll
  • Fréttabréf
    • 2011-2022
    • 2009-2011
    • 2006-2008
    • 2001-2006
    • 1991-2001
    • 1984-1991
  • Jökull
  • Myndir & myndbönd
    • Vorferð JÖRFÍ 2007
  • Search
  • Menu

Nothing Found

Sorry, no posts matched your criteria

Jöklar á Íslandi – Helgi Björnsson

29. nóvember 2009/in Fréttir /by hannakata

joklar_hb

Í tilefni af nýútkominni bók Helga Björnssonar Jöklar á Íslandi munu Jöklarannsóknafélag Íslands og Hið íslenska náttúrufræðafélag standa að sameiginlegum fundi mánudaginn 30. nóvember. Þar mun Helgi Björnsson jöklafræðingur halda fyrirlestur undir yfirskriftinni Jöklar á Íslandi við upphaf 21. aldar og framtíðarhorfur. Fundurinn verður haldinn í Salnum í Kópavogi og hefst klukkan 17:15.

Bókin verður seld á staðnum og stendur félögum JÖRFÍ til boða með veglegum afslætti.

http://gamli.jorfi.is/wp-content/uploads/2019/03/JORFILOGOOO.jpg 0 0 hannakata http://gamli.jorfi.is/wp-content/uploads/2019/03/JORFILOGOOO.jpg hannakata2009-11-29 22:07:422010-02-11 01:59:13Jöklar á Íslandi - Helgi Björnsson

Árshátíð JÖRFÍ 14. nóvember í Þórsmörk

28. október 2009/in Fréttir /by hannakata

Árshátíð Jöklarannsóknafélagsins verður haldin í Básum á Goðalandi helgina 14.-15. nóvember næstkomandi. Lagt verður af stað frá Select við Vesturlandsveg á laugardagsmorgni á bílum félagsmanna JÖRFÍ. Einnig verður boðið upp á sætaferðir frá Stóru-Mörk kl. 17.

Dagskrá:
-Lagt af stað frá Select við Vesturlandsveg kl. 10 laugardaginn 14. nóvember
-Gönguferð um Goðaland undir leiðsögn Madame X eftir hádegi
-Hátíðarkvöldverður hefst með fordrykk klukkan 18:30

Matseðill
*Fordrykkur á fæti
*Forréttur – Taðreyktur öfuguggi á blínisbeði með styrjuhrognum
*Aðalréttur – Draumur útilegumannsins með salati að hætti Höllu
*Eftirréttur – Snjóhvít jöklamús á öðru glasi

Aðrir drykkir en fordrykkur eru á ábyrgð hvers og eins.

Að loknum kvöldverði verða kyrjuð jöklamannaljóð við viðeigandi undirleik, ísköld skemmtiatriði borin á borð, dufl og dans fram eftir kvöldi þar sem harmonikkustemmning verður í hávegum höfð. Líkur á óvæntum gestum!

Á sunnudegi verður lagt af stað úr Básum uppúr hádegi.

Miðaverð er 6.000 kr, innifalið er matur á laugardagskvöldi og gisting í Básum. Miðasala mun fara fram 9.-11. nóvember hjá eftirtöldum:

*Valdi rakari – Rakarastofunni Dalbraut 1
*Finnur Pálsson – Öskju
*Jósef Hólmjárn – Veðurstofunni, Bústaðavegi

Fyrirspurnum varðandi árshátíð er svarað á sumarferd@gmail.com og hjá Ágústi í síma 894-5257.

Skemmtinefndin

http://gamli.jorfi.is/wp-content/uploads/2019/03/JORFILOGOOO.jpg 0 0 hannakata http://gamli.jorfi.is/wp-content/uploads/2019/03/JORFILOGOOO.jpg hannakata2009-10-28 16:03:252010-02-11 01:59:47Árshátíð JÖRFÍ 14. nóvember í Þórsmörk

Haustfundur JÖRFÍ 20. október í Öskju

19. október 2009/in Fréttir /by hannakata

Haustfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn 20.október 2009 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands klukkan 20:00.

Erindi: “Áhrif vatns á hreyfingu jökla rannsökuð með gervitunglum.”
Eyjólfur Magnússon

Myndasýning: Brynjar Gunnarsson sýnir ljósmyndir úr vorferð 2008.

Nánar er fjallað um haustfundinn og fleira tengt starfsemi JÖRFÍ undanfarið í fréttabréfi sem nýverið kom út og má nálgast hér.

http://gamli.jorfi.is/wp-content/uploads/2019/03/JORFILOGOOO.jpg 0 0 hannakata http://gamli.jorfi.is/wp-content/uploads/2019/03/JORFILOGOOO.jpg hannakata2009-10-19 11:27:422009-10-28 15:18:36Haustfundur JÖRFÍ 20. október í Öskju
Page 60 of 70«‹5859606162›»
  • Félagið
  • Skráning í félagið
  • Rannsóknir
  • Sporðaköst.is
  • Senda fyrirspurn
  • Bókanir í skála
  • Hut booking
Allur réttur áskilinn - Jöklarannsóknafélagi Íslands 2021
Scroll to top