Dagskrá GJÖRFÍ fram á sumar
Gönguferðir GJÖRFÍ, gönguhóps Jöklarannsóknafélagsins, eru á allra færi og eru í vetur að jafnaði farnar annan hvern fimmtudag kl. 17:30. Í skammdeginu verður gengið eftir upplýstum göngustígum, ennisljós geta þó komið að gagni. Gönguferðirnar taka ca 1 1/2 – 2 klst. Oft er farið á veitingastað að lokinni göngu, (upplagt fyrir þá sem ekki komast í göngu að hitta hópinn þar). Í forsvari fyrir hópnum eru Ástvaldur Guðmundsson og Þóra Karlsdóttir, en frekari upplýsingar má nálgast hjá Þóru í síma 866-3370.
Dagskráin fram á sumar er hér að neðan.
| Dags. | Áfangastaður | Brottför |
| 14. feb. | Kópavogsdalur | Digraneskirkja |
| 28. feb. | Fossvogsdalur | Borgarspítali (að austanv.) |
| 14. mars | Grafarvogur | Korpúlfsstaðir |
| 28. mars | Nauthólsvík | Nauthóll |
| 11. apríl | Vatnsmýrin | Norræna húsið |
| 25. apríl | Guðmundarlundur | Guðmundarlundur |
| 9. maí | Hvaleyrarvatn | N1 Hafnarfirði |
| 23. maí | Kringum Helgafell | N1 Hafnarfirði |
| 6. júní | Búrfellsgjá | Heiðmörk |
| 20. júní | Heiðmörk | Vífilsstaðahlíð |
| Sumarfrí | ||
| 15. ágúst | Tröllafoss | Orkan Ártúnsbrekku |
| 29. ágúst | Guðmundarlundur | Guðmundarlundur |
