Vorferð JÖRFÍ 29. maí – 6. júní 2009

Lagt var upp í hina árlegu rannsóknarferð Jöklarannsóknafélagsins á Vatnajökul frá Reykjavík föstudagskvöldið 29. maí. Aðfararnótt laugardags var gist í Jökulheimum og haldið síðan sem leið lá um Tungnaárjökul á Grímsfjall í skýjuðu en aðgerðarlitlu veðri.

Jöklarauður léttur á sér.

Jöklarauður léttur á sér.

Á hvítasunnudag lá leiðin beint í Kverkfjöll þar sem fjögurra manna hópur varð eftir og dvaldi við mælingar fram á þriðjudagskvöld. Mánudaginn 1. júní, annan í hvítasunnu, hófust rannsóknir í Grímsvötnum og víðar á jöklinum. Næstu daga var farið á Bárðarbungu, Hamarinn, Háubungu og víðar, auk þess sem lítill hópur fór á snjóbíl og vélsleðum til íssjármælinga á Öræfajökli. Veðurblíða var flesta dagana. Fyrir vikið gekk vinna á jöklinum vel og það tókst að ljúka þeim verkefnum sem áformuð voru. Vatnshæð Grímsvatna er með lægsta móti, aðeins 1355 m.y.s. svo þau leka enn og ekki von á umtalsverðum hlaupum þaðan vegna jarðhitabráðnunar á næstu misserum. Afkoma vetarins var í góðu meðallagi. GPS landmælingar gengu mjög vel og í þetta sinn tókst að setja upp nýjan mælipunkt á dálitlum hrygg norðan Esju í Esjufjöllum.

Hugað að úrkomumæli á Grímsfjalli.

Hugað að úrkomumæli á Grímsfjalli.

Grímsvötn og reyndar jökullinn allur voru vetrarlegri en oft áður. Við vorum frekar snemma á ferðinni en tíðarfar í maí hefur ekki ýtt undir leysingu ofan til á jöklinum. Fyrir vikið voru húsin á Grímsfjalli hálfgrafin í snjó þegar komið var á fjallið og náðist ekki að moka frá þeim nema að hluta.

Uppsetning mælitækja að kvöldlagi í Grímsvötnum

Uppsetning mælitækja að kvöldlagi í Grímsvötnum

Þátttakendur í ferðinni voru alls 29, þar af voru 7 yfir hvítasunnuhelgina en tveir bættust við á miðvikudegi. Farartæki voru snjóbíll HSSR, Ford bíll JÖRFÍ, auk nokkurra annarra bíla og vélsleða. Landsvirkjun og Vegagerðin styrkja ferðina með því að leggja til farartæki og styrk fyrir eldsneyti.

Magnús Tumi.

Mælt á Mýrdalsjökli

Laugardaginn 9. maí héldu félagar í Jöklarannsóknafélaginu til mælinga á Mýrdalsjökli. Eins og í fyrri ferðum var ætlunin að bora þrjár holur og kanna vetrarákomuna á jökulinn. Á jökulinn lögðu fjórir bílar, 10 mælingarmenn og einn jöklahundur.


Leiðangursmenn bora fyrstu holuna á Mýrdalsjökli vorið 2009 og Björn kyndir reyk(gufu)vélina. Mynd: Símon Halldórsson.

Veðurspáin gaf fyrirheit um að hvöss norðanáttin gengi niður þegar líða tæki á daginn og gekk það eftir. Hvasst og kuldalegt var á leið á jökulinn en mælt var í prýðisveðri allan liðlangan daginn er loks var komið inn á meginjökulinn. Færðin var hins vegar afar erfið og tók ferðin nú nær 20 klst m.v. 10 klst í fyrra en það gaf góð tækifæri til jöklasólbaða á meðan ekið var á milli mælistaða. Vel gekk að bora og mæla, og dýpt snjólags síðasta vetrar reyndist svipað og í fyrra eða um 9-12 m í öllum þremur holunum. Síðasta holan á Goðabungu var boruð í kvöldsólinni með stórkostlegt útsýni yfir Suðurland og Vestmannaeyjar.


Eiríkur og Hanna Kata munda borinn. Mynd: Símon Halldórsson.

Vetrarákomumælingar í fullum gangi

Vorleiðangrar Landsvirkjunar, Raunvísindastofnunar HÍ og Veðurstofu Íslands standa yfir þessa dagana.

Langjökull var mældur dagana 19.-22. apríl af Sveinbirni Steinþórssyni, Hlyni Skagfjörð Pálssyni og Andra Gunnarssyni frá Landsvirkjun. Leiðangurinn hófst í aftakaveðri en gekk þó að óskum á þremur sólarhringum þó að enginn hefði farið úr að ofan að þessu sinni. Ákoma á Langjökul reyndist svipuð og síðustu ár. Farartæki mælingamanna var Boli, snjóbíll Hjálparsveitar skáta í Reykjavík.

hofsjok_bergur
Gufuborun fyrir afkomumælingastiku á Þjórsárjökli, Vilhjálmur S. Kjartansson til vinstri og Þorsteinn Þorsteinsson til hægri.

Árleg ákomumælingaferð á Hofsjökul var farin dagana 30. apríl til 6. maí. Vatnamælingar Orkustofnunar hafa séð um mælingar á Hofsjökli frá upphafi en Vatnamælingar voru sameinaðar Veðurstofu Íslands nú um áramótin og ferðin var því nú í fyrsta skipti farin undir merkjum nýrrar Veðurstofu Íslands. Þátttakendur í ferðinni voru Þorsteinn Þorsteinsson, Vilhjálmur S. Kjartansson og Bergur Einarsson, allir frá Veðurstofu Íslands. Farið var á jökul suðaustan megin frá Kvíslaveitum, upp Þjórsárjökul og yfir í Ingólfsskála norðan við Sátujökul en þaðan var gert út á vélsleðum. Ákoma á jökulinn var mæld í 25 punktum og var hún í meðallagi. Til marks um hopandi jökla þá eru þrír neðstu mælistaðir í mælilínum á jöklinum komnir alveg að eða fram yfir jökuljaðar svo að finna varð þeim punktum nýjan stað ofar á jöklinum.

vjok_hsp
Boli, svítan, sleðar og vaskir menn á Vatnajökli.

Vatnajökulsleiðangur hefur tafist nokkuð vegna óhagstæðra veðuraðstæðna en hófst föstudaginn 8. maí. Í þessum stærsta jöklamælingaleiðangri hvers árs eru boraðar 50 holur í gegnum vetrarsnjóinn og settir niður jöklavírar og stangir sem svo er lesið af að hausti. Þá eru settar upp fimm veðurstöðvar og viðhaldi sinnt á stöðvum og mælitækjum í Grímsvötnum, á Grímsfjalli og nyrst á Brúarjökli. Ekin vegalengd á jökli er um 360 kílómetrar. Leiðangursmenn verða fimm: Hannes Haraldsson LV, Finnur Pálsson RH, Þorsteinn Jónsson RH ásamt „gemlingunum“ Sveinbirni og Hlyn sem áður voru nefndir. Leiðangurinn er væntanlegur aftur til byggða um eða uppúr 18. maí. Farartæki verða Boli-snjóbíll HSSR, Jöklagráni Hannesar og LV og tveir vélsleðar. Einnig er með í för „Svíta“ Landsvirkjunar, átta metra langt skíðahús sem dregið er aftan í Bola.

Vorfundur JÖRFÍ

Vorfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 28.apríl 2009 kl. 20 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.

Efni fundarins:

Himalayajöklar í hlýnandi loftslagi – Þorsteinn Þorsteinsson

Myndasýning: Skálabyggingar Jöklarannsóknafélagsins – Pétur Þorleifsson

Afkomumælingar á Mýrdalsjökli

Undanfarin tvö ár hefur afkoma verið mæld á Mýrdalsjökli eftir nokkuð stopular mælingar árin á undan. Í fyrra fór stór hópur á jökulinn og boraði 3 holur sem náðu 9, 10 og 12 metra dýpi sem er svipað og árið á undan.

Í ár verður haldið í hefðina og aftur mælt á Mýrdalsjökli. Ferðin er kjörinn vettvangur til að kynnast starfsemi JÖRFÍ og öllum er frjálst að mæta og taka þátt. Ætlunin er að fara dagsferð á Mýrdalsjökul laugardaginn 9. maí. Ef veður verður óhagstætt verður leitað færis sunnudaginn 10. maí.

Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Hálfdán með tölvupósti á halfdana@gmail.com eða í síma 865-9551. Fólk er hvatt til þess að hafa samband sem fyrst, hvort sem þeir eru eigendur jöklatækja eða eru farlausir en þá reynum við að finna laus sæti hjá samferðarmönnum okkar.