Árshátíð JÖRFÍ verður haldin með sérstökum hátíðarbrag laugardaginn 13. nóvember, en tilefnið er að fagna 70 (og 71 árs) afmæli félagsins.
Dagskráin hefst í Perlunni kl. 17 á árshátíðardaginn, með opnun á  sýningunni VORFERÐ sem fjallar um starfssemi félagsins og verður sýnd í  “Dropanum“, sýningarrými Náttúruminjasafnsins á 2. hæð.
Frá Perlunni verður gestum boðið uppá rútuferð á  veislustaðinn sjálfan, sal Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í  Leirdalnum. Boðið verður upp á spennandi þriggja rétta matseðil, þar á  meðal grænmetisrétti. Aðgengi að veislusalnum er mjög gott og  nægt pláss til þess að ræða málin og dansa af sér skóna. Krapablár fordrykkur, lifandi tónlist, myndasýning og skelegg veislustjórn í  höndum Bryndísar Brands. 
Miðaverð er kr. 9.000,- fyrir almenna félaga og  sérstakt verð fyrir nemendur er kr. 6.000,-. Miðasala er hjá Tollý og Dísu í  Öskju, Hrafnhildi og Bergi á Veðurstofunni og Garðari Briem.
Takið daginn frá og pússið dansskóna, við hlökkum til að samfagna með ykkur öllum.