Miðvikudaginn 19. janúar verður fyrsta fjar-fræðsluerindi JÖRFÍ þetta  árið. Eyjólfur Magnússon mun segja frá Grímsvatnahlaupi sem varð í lok  árs 2021 og Kristín Jónsdóttir ásamt Sölva Þrastarsyni segja frá  óhefðbundnum jarðskjálftamælingum með ljósleiðara á  Grímsfjalli. Í upphafi fundarins verður nýr vefur tímaritsins Jökuls  formlega opnaður og virkni hans kynnt. 
Grímsvatnahlaup á aðventunni 2021: Í nóvember 2021 hófst jökulhlaup úr Grímsvötnum. Þá hafði tæpur  rúmkílómetri af bræðsluvatni safnast fyrir í vötnunum frá síðasta hlaupi  sem var haustið 2018. Ekki hafði safnast eins mikið í vötnin í 25 ár,  þ.e. síðan í Gjálpargosinu 1996. Aldrei hefur  áður verið fylgst eins vel með gangi Grímsvatnahlaups. Vatnsborð  Grímsvatna er vaktað í tveimur GPS stöðvum sem eru staðsettar í  fljótandi íshellu Grímsvatna og voru í beinu fjarskiptasambandi þannig  að mælingarnar bárust jafnóðum og þær voru skráðar. Út frá  sighraða íshellunnar, sem mældur var með nákvæmni upp á 1-2 cm á dag,  var hægt reikna hversu hratt rann úr vötnunum. Þessar mælingar sýna að  úrrennsli vatnanna óx úr fáeinum m3/s um miðjan nóvember í ~3500 m3/s að  kvöldi 4. desember, eftir það minnkaði rennslið  hratt og 7. desember höfðu vötnin líklega tæmst. Í erindinu verður  farið yfir þessar mælingar og aðrar sem aflað var í hlaupinu. Í erindu  verður einnig verður farið yfir þær breytingar sem orðið hafa í  Grímsvötnum frá Gjálpargosinu til dagsins í dag.
Eyjólfur Magnússon er vísindamaður í jöklafræði við Jarðvísindastofnun Háskólans 
Ljósleiðaraverkefni á Grímsfjalli: Í maí 2021 var farinn rannsóknarleiðangur á Grímsfjall í  óhefðbundnar jarðskjálftamælingar þar sem plægður var 12 km langur og  0,5 cm breiður ljósleiðarakapall, um 0,5 m ofan í snjóinn, frá  Grímsfjalli og ofan í Grímsvötn. Að leiðangrinum stóðu vísindamenn  frá ETH háskólanum í Sviss og Veðurstofu Íslands, með aðstoð  Hjálparsveita skáta í Reykjavík og JÖRFÍ félaga. Síðastliðin ár hefur  orðið bylting í jarðskjálftafræði þar sem sýnt hefur verið fram á  hvernig nýta má ljósleiðara til að mæla jarðskjálfta í miklu  hærri upplausn en áður. Aðferðin notar ljósleiðara ásamt sérútbúinni  tölvu sem sendir laserpúlsa í gegnum ljósleiðara og nemur endurkast frá  þeim. Í Grímsvatnaverkefninu, sem kallað hefur verið DAS-BúmmBúmm, voru  gerðar mælingar á 8 m fresti í ljósleiðaranum,  eða í heildina um 1550 mælingar (15 sinnum fleiri en allir  jarðskjálftamælar á Íslandi!). Auk þess að mæla margfalt fleiri  smáskjálfta en sjást í hefðbundnum mælingum, sýndi tilraunin t.a.m.  samfelldan titring á þeim hluta ljósleiðarans sem lá ofan á íshellu  Grímsvatna. Í fyrirlestrinum verður sagt frá leiðangrinum og fyrstu  niðurstöðum gagnaúrvinnslunnar. 
Kristín Jónsdóttir er jarðskjálftafræðingur og hópstjóri  Náttúruvárvöktunar Veðurstofu Íslands og Sölvi Þrastarson er í  doktorsnámi í jarðskjálftafræði við ETH í Zurich í Sviss.
Vísindatímaritið Jökull: Frá 1951 hafa birst yfir 400 ritrýndar vísindagreinar í Jökli. Ritið er  því stærsta safn fræðigreina sem til er um jarðfræði Íslands og hefur  mikla þýðingu fyrir jarðvísindi hér á landi. Undanfarið ár hefur verið  unnið að því að koma Jökli í rafrænt form með  þróun heimasíðu sem gerir notendum kleift að leita í greinasafninu  eftir ýmsum leiðum.