Dagskrá GJÖRFÍ í upphafi vetrar
Gönguferðir GJÖRFÍ, gönguhóps Jöklarannsóknafélagsins, eru á allra færi og verða í vetur að jafnaði farnar annan hvern fimmtudag kl. 17:30. Í skammdeginu verður gengið eftir upplýstum göngustígum, ennisljós geta þó komið að gagni. Gönguferðirnar taka ca 1 1/2 – 2 klst. Oft er farið á veitingastað að lokinni göngu, (upplagt fyrir þá sem ekki komast í göngu að hitta hópinn þar). Í forsvari fyrir hópnum eru Ástvaldur Guðmundsson og Þóra Karlsdóttir, en frekari upplýsingar má nálgast hjá Þóru í síma 866-3370.
Dagskráin fram að jólum er hér að neðan.
Dags. | Áfangastaður | Brottför frá |
4. október | Fossvogsdalur | Austan Borgarspítala |
18. október | Korpúlfsstaðir | Korpúlfsstaðir |
1. nóvember | Laugardalur | Áskirkja |
15. nóvember | Nauthólsvík | Nauthóll |
29. nóvember | Kópavogsdalur | Digraneskirkja |
13. desember | Vatnsmýri | Norræna húsið |