Afkomumælingar á Mýrdalsjökli 18.-19. maí

Sjálfboðaliðar Jöklarannsóknafélagsins halda áfram reglubundnum afkomumælingum á Mýrdalsjökli. Næsta mælingaferð er fyrirhuguð helgina 18. – 19. maí, en tímasetning er háð veðurspá og verður dagur ákveðinn þegar nær dregur þessari helgi. Félagar í JÖRFÍ eru velkomnir með á jökla-bifreiðum sínum en reynt verður að skipa þeim í laus sæti sem ekki komast á eigin farartæki. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Eyjólf Magnússon (eyjolfm@hi.is) eða Hrafnhildi Hannesdóttur (hh@vedur.is).

Vorfundur og nýtt fréttabréf JÖRFÍ

Vorfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl kl. 20 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.

Á fundinum ræða Hrafnhildur Hannesdóttir og Snævarr Guðmundsson í máli og myndum um breytingar á skriðjöklum Vatnajökuls á Suðausturlandi og landbreytingar framan þeirra frá lokum 19. aldar.

Nánar um efni vorfundarins í nýju fréttabréfi JÖRFÍ.

Verkefnið „Hörfandi jöklar“

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að miðlun upplýsingum um jökla og loftslagsbreytinga í gegnum verkefnið Hörfandi jöklar,  í samstarfi Umhverfis-og auðlindaráðuneytisins, Vatnajökulsþjóðgarðs, Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans, Náttúrustofu Suðausturlands og Gagaríns. Ein af afurðum þess verkefnis er fræðslubæklingur sem gefur innsýn í þær breytingar sem hlýnandi loftslag hefur á skriðjökla Vatnajökuls.  Bæklingurinn er á íslensku og ensku og má nálgast í gestastofum Vatnajökulsþjóðgarðs en einnig sem pdf skjal:

https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/static/files/Utgefid-efni/VJP-sameiginlegt/horfandi-joklar_2017_pdf-af-baekling.pdf

5_3b_Skridjoklar-Oraefajokull

Aðalfundur og nýtt fréttabréf

Aðalfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, þriðjudaginn 26. febrúar 2019 kl. 20:00. Að loknum aðalfundarstörfum verður sýnd kvikmynd Árna Stefáns­sonar um Fransk-íslenska leiðangurinn á Vatnajökul í mars-apríl 1951.

Nánar um efni aðalfundar í nýju fréttabréfi Jöklarannsóknafélagsins.

Dagskrá GJÖRFÍ fram á sumar

Gönguferðir GJÖRFÍ, gönguhóps Jöklarannsóknafélagsins, eru á allra færi og eru í vetur að jafnaði farnar annan hvern fimmtudag kl. 17:30. Í skammdeginu verður gengið eftir upplýstum göngustígum, ennisljós geta þó komið að gagni. Gönguferðirnar taka ca 1 1/2 – 2 klst. Oft er farið á veitingastað að lokinni göngu, (upplagt fyrir þá sem ekki komast í göngu að hitta hópinn þar). Í forsvari fyrir hópnum eru Ástvaldur Guðmundsson og Þóra Karlsdóttir, en frekari upplýsingar má nálgast hjá Þóru í síma 866-3370.

Dagskráin fram á sumar er hér að neðan.

Dags. Áfangastaður Brottför
14. feb. Kópavogsdalur Digraneskirkja
28. feb. Fossvogsdalur Borgarspítali (að austanv.)
14. mars Grafarvogur Korpúlfsstaðir
28. mars Nauthólsvík Nauthóll
11. apríl Vatnsmýrin Norræna húsið
25. apríl Guðmundarlundur Guðmundarlundur
9. maí Hvaleyrarvatn N1 Hafnarfirði
23. maí Kringum Helgafell N1 Hafnarfirði
6. júní Búrfellsgjá Heiðmörk
20. júní Heiðmörk Vífilsstaðahlíð
Sumarfrí
15. ágúst Tröllafoss Orkan Ártúnsbrekku
29. ágúst Guðmundarlundur Guðmundarlundur