Entries by halfdana

Vorfundur og nýtt fréttabréf JÖRFÍ

Vegna Covid-19 og takmarkana á samkomum þá heldur Jöklarannsóknafélag Íslands ekki hefðbundinn vorfund. Þess í stað verður fræðsluerindi Joaquín Muñoz-Cobo um jöklabreytingar 1945 – 2017 streymt á netinu. Streymið hefst kl. 20 þriðjudagskvöldið 5. maí 2020, og verður erindið aðgengilegt um tíma eftir að beinu streymi lýkur. Leiðbeiningar um hvernig tengjast á streyminu verða birtar […]

Aðalfundur og nýtt fréttabréf JÖRFÍ

Aðalfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, þriðjudaginn 25. febrúar kl. 20:00. Að loknum aðalfundarstörfum þá mun Halldór Ólafsson segja í máli og myndum frá upphafsárum félagsins, Jóni Eyþórssyni stofnanda þess og því fólki sem með honum starfaði. Nánar um efni aðalfundarins í nýju fréttabréfi JÖRFÍ.

Dagskrá GJÖRFÍ til hausts 2020

Gönguferðir GJÖRFÍ, gönguhóps Jöklarannsóknafélagsins, eru á allra færi og eru í vetur að jafnaði farnar annan hvern fimmtudag kl. 17:30. Í skammdeginu verður gengið eftir upplýstum göngustígum, ennisljós geta þó komið að gagni. Gönguferðirnar taka ca 1 1/2 – 2 klst. Oft er farið á veitingastað að lokinni göngu, (upplagt fyrir þá sem ekki komast […]

Haustfundur og nýtt fréttabréf

Haustfundur Jöklarannsóknafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 22. október kl. 20 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Á fundinum mun Magnús Tumi Guðmundsson segja frá ferð Svíanna Wadell og Ygberg í Grímsvötn 1919, fyrir réttum 100 árum, en það er fyrsta ferð í Grímsvötn sem sögur fara af. Eftir kaffihlé mun Sverrir Hilmarsson sýna myndir frá ferðum […]

Dagskrá GJÖRFÍ fram að áramótum