Dagskrá GJÖRFÍ í upphafi vetrar
Gönguferðir GJÖRFÍ, gönguhóps Jöklarannsóknafélagsins, eru á allra færi og verða í vetur að jafnaði farnar annan hvern fimmtudag kl. 17:30. Í skammdeginu verður gengið eftir upplýstum göngustígum, ennisljós geta þó komið að gagni. Gönguferðirnar taka ca 1 1/2 – 2 klst. Oft er farið á veitingastað að lokinni göngu, (upplagt fyrir þá sem ekki komast í göngu að hitta hópinn þar). Í forsvari fyrir hópnum eru Ástvaldur Guðmundsson og Þóra Karlsdóttir, en frekari upplýsingar má nálgast hjá Þóru í síma 866-3370.
Dagskráin fram að jólum er hér að neðan.
| Dags. | Áfangastaður | Brottför frá | 
| 4. október | Fossvogsdalur | Austan Borgarspítala | 
| 18. október | Korpúlfsstaðir | Korpúlfsstaðir | 
| 1. nóvember | Laugardalur | Áskirkja | 
| 15. nóvember | Nauthólsvík | Nauthóll | 
| 29. nóvember | Kópavogsdalur | Digraneskirkja | 
| 13. desember | Vatnsmýri | Norræna húsið | 
