Dagskrá GJÖRFÍ fram á sumar
Gönguferðir GJÖRFÍ, gönguhóps Jöklarannsóknafélagsins, eru á allra færi og verða nú jafnaði farnar annan hvern þriðjudag kl. 17:30. Í forsvari fyrir hópnum eru Ástvaldur Guðmundsson og Þóra Karlsdóttir. Dagskráin fram á haust er hér að neðan.
| Dags. | Áfangastaður | Brottför |
| 6. mars | Kópavogsdalur | Digraneskirkja |
| 20. mars | Laugardalur | Áskirkja |
| 3. apríl | Elliðaárdalur | Rafveituheimilið |
| 17. apríl | Hvaleyrarvatn | N1 Hafnarfirði |
| 1. maí | Húsfell/Kaldársel | N1 Hafnarfirði |
| 15. maí | Búrfellsgjá | Heiðmörk |
| 29. maí | Helgufoss | Shell Select |
| 12. júní | Mosfell | Shell Select |
| Sumarfrí | ||
| 21. ágúst | Tröllafoss | Shell Select |
| 4. sept. | Hafnarfjörður | N1 Hafnarfirði |
