Sumarferð á Ok-ið og ágústferð að nýja hrauninu
Ágústferð
Jöklarannsóknafélagið fer 7.-9. ágúst í skemmtiferð inn á Dyngjusand að skoða nýja hraunið norðan Vatnajökuls.  Ferðalangar munu hittast í Mývatnssveit og fara þaðan í rútu að morgni föstudags en komið verður aftur tilbaka á sunnudegi.  Gert er ráð fyrir að gista í Herðubreiðarlindum og þaðan verður haldið í skoðunarferðir um nýja hraunið og Öskju.  Nánari upplýsingar berast síðar, þ.m.t. varðandi kostnað og aðra tilhögun.  Magnús Tumi verður fararstjóri ferðarinnar en Þóra Karlsdóttir svarar fyrirspurnum og tekur við skráningum í síma 8663370 og í netfanginu: „thorakarls hjá gmail.com“. 
Sumarferð
Jafnframt er minnt á áður auglýsta sumarferð en afráðið hefur verið að gera lokatilraun við Ok-ið eftir að aftakaveður setti slík plön tvívegis úr skorðum.  Eins og jafnan er ferðin fyrirhuguð fyrstu helgina í júlí (3.-5.). Verði veðurguðirnir okkur enn óhliðhollir þá verður ferðaáætlun breytt og haldið í Þakgil undir Mýrdalsjökli.
