Árshátíð 2010 – 60 ára afmæli Jöklarannsóknafélagsins
Árshátíð Jöklarannsóknafélagsins verður haldinn 13.nóvember næstkomandi. Hátíðin hefst kl.18:00 í húsnæði Veðurstofunnar, Bústaðavegi 9, Reykjavík. Þar verður stutt dagskrá og veitingar í boði Veðurstofunnar. Upp úr klukkan 19:00 verða gestir fluttir með rútu Guðmundar Jónassonar í veislusal Þróttar í Laugardalnum, þar sem dagskrá hefst kl.20:00.
Jöklarannsóknafélagið fagnar 60 ára afmæli sínu um þessar mundir og dagskráin því venju fremur vegleg, gamlir félagar heiðraðir, söngur, myndasýningar, tónlist, sælkeramatur og ekki síst dufl og dans.
Stjórn félagsins hefur slegið skjaldborg um buddu félagsmanna og valið niðurfærsluleið. Miðaverði er því mjög stillt í hóf eða aðeins 5.000 krónur.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og fagna tímamótunum saman.
Miða er hægt að fá hjá eftirfarandi sölumönnum:
Leifur Jónsson (Heiðarlundi 6 – 210 Garðabæ, Húsasmiðjan þriðjudagsmorgni, fimmvh(hjá)simnet.is,
Jósef Hólmjárn (Veðurstofan, Bústaðavegur 6, Reykjavík);josef(hjá)vedur.is
Hlynur Skagfjörð Pálsson (húsnæði HSSR, Malarhöfði 6, Reykjavík), hlynursp(hjá)gmail.com,
Hálfdán Ágústsson (Grensásvegur 9 Reykjavík), halfdana(hjá)hi.is
Grétar Már Þorvaldsson (Málmsteypan Hella, Kaplahraun 5, Hafnarfjöður), gretar(hjá)hella.is
Finnur Pálsson Askja, Náttúrafræðahús Sturlugata 7, Reykjavík, fp(hjá)raunvis.hi.is
Nánari upplýsingar að fá hjá skemmtinefnd: Ágúst Hálfdánarson (agust(hjá)glertaekni.is – s:894-5257) Valgerður Jóhannsdóttir (valgerdurjoh(hjá)simnet.is – s:899-9340), Eríkur Lárusson (raflost(hjá)hotmail.com)