13. septemberferð í Jökulheima
Brottför verður frá Reykjavík kl. 18 föstudagskvöldið 13. sept. og ekið í Jökulheima, þar sem gist verður báðar næturnar.
Hugmyndin er að ganga á Jökulgrindurnar á laugardeginum, frá skarðinu þar sem Grindakvísl fellur í gegnum fjallgarðinn og norður undir Kerlingar. Þar munum við skoða jökulmenjar frá því að Tungnaárjökull var hvað mestur. Það eru um 11 km norður í Kerlingar og víða hægt að slást í för með hópnum eða snúa fyrr við, en þá er hægt að aka slóðann inn að Sylgju og hitta á hópinn. Varaplan hljóðar upp á að skoða jökulmenjarnar austan við Jökulheima og ganga á Rata. Á sunnudaginn sjáum við fyrir okkur að ganga á Mána, og jafnvel fara um Þórisós til baka.
Sameiginlegt grill verður á laugardagskvöldinu og kannski stiginn dans á pallinum. Hver og einn greiðir skjálagjöld fyrir sig og farþegar bíla taka þátt í eldsneytiskostnaði.
Endilega skráið ykkur sem fyrst hjá Hlyni (hlynursp hjá gmail.com, s. 893-0336)
Með góðri kveðju,
Undirbúningsnefndin; Hlynur og Hrafnhildur